Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Margir afkomendur þórunnar frá Byggðarenda hafa búið á Illugagötu

   Illugagatan hefur löngum verið litrík hér má sjá hvernig hús voru málur fyrir 25 til 30 árum.

Ágæta Byggðarendafjölskylda, Þegar maður hugsar um liðna tíð kemur í ljós að hvergi í Vestmannaeyjum hafa búið fleiri afkomendur Þórunnar Sveinsdóttur  frá Byggðarenda en á Illugagötu. Mér flaug þetta í hug þegar ég var að skoða gamlar myndir sem ég hef tekið af Illugagötunni í gegnum árin.

Byrjum neðst:

Óskar Matthíasson og Þóra Sigurjónsdóttir með öll sín börn

Matthías Óskarsson og Inga Pétursdóttir og börn

Hafdís Sveinbjörnsdóttir og Ólafur Kristinsson og börn

Kristján Óskarsson og Emma Pálsdóttir og börn

Viðar Sigurjónsson og Eygló Elíasdóttir og börn

Berglind Kristjánsdóttir og Jón Snædal Logason og börn

Matthías Sveinsson og Kristjana Björnsdóttir og börn

Sigmar Þór Sveinbjörnsson og Kolbrún Ósk  Óskarsdóttir og börn

Sigurjón Óskarsson og Sigurlaug Alfreðsdóttir og börn

Pétur Sveinsson og Henný Dröfn Ólafsdóttir og börn

Hafdís Kristjánsdóttir og börn

Sigmar Gíslason og Ásta Kristmannsdóttir og börn

Gylfi Sigurjónsson og Erna Sævaldsdóttir og börn

Ekki man ég eftir fleirum í bili en ef ég hef gleymt einhverjum þá vinsamlegast setjið inn athugasemd.

 Kær kveða

Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Illugagara hamlar myndir 4Illugagata gamlar myndir 3

Á þessum myndum er illugagatan ekki malbikuð eins og sjá má, þessar myndir tók ég fyrir 25 til 30 árum.

Illugagata gamlar myndir 2Illugagata gamlar myndir 1

Ef þið stækkið myndina sést vel hvaða peyjar þetta eru, Siggi Óli. Birgir og Gísli

Enn og aftur skora ég á ættingja að setja efni á síðuna okkar og halda þannig lífi í henni.

kær kveðja Sigmar Þór


Feðgar í spjalli

Óskar M. og Sigurjón Ó 

Myndin er tekinn 1987. Óskar Matthíasson skipstjóri og útgerðarmaður á Leó VE 400 ( og Þórunni Sveins) og Sigurjón Óskarson skipstjóri og útgerðarmaður á Þórunni Sveinsdóttir VE 401.

kær kveðja Sigmar Þór


Minnig um Óskar Matthíasson eftir Hafstein Stefánsson

Óskar Matthíasson skipstjórai

 

Hafstein S óskar ljóð

Hafsteinn Stefánsson skipasmiður og skáld og Óskar Matthíasson skipstjóri og úgerðarmaður

Bréf og ljóð eru frá Hafseini Stefánssyni skipasmið og skipstjóra sem bjó lengi í Vestmannaeyjum og starfaði þar sem skipsmiður, sjómaður og skipaeftirlitsmaður.

-------------------------------------------------------------------------------------------------------

Selfossi 22.desember 1992

Vegna burtfarar Óskars Matthíassonar skipstjóra.

Kæri vinur, eins og ég sagði þér í símanum, þá vorum við Óskar saman í skipsrúmi fyrstu vertíðina sem ég var í Eyjum. Þá kynntumst við stúlkum þeim sem urðu okkar lífaförunautar , á lífsgöngunni. Það var alltaf einhver ósýnilegur þráður á milli okkar sem aldrei slitnaði, og þessi þráður hélt fyrir mér vöku í nótt, og þá urðu þessi vísukorn til.

Góðan vilja varst þú með í för

á vegi lífsins allt til sólarlagsins

áttir dirfsku og kapp við ægis kjör

og kærleika sem mýkir þrautir dagsins.

 

Er til hinstu farar flaut þitt skip

um feigðarsund í ljúfu aftanskini

fannst mér vetrarbrimið breyta um svip

og báran horfa á eftir kærum vini.

 

                                Hafsteinn Stefánsson

Kveðja SÞS


Mótorbáturinn Ari VE 235 ferst SA við Bjarnarey

20.5.2008 | 21:52

Matthías Gíslason og fjölskylda Þórunn Sveinsdóttir með syni sína 1. mynd: Hjónin Matthías Gíslason og Þórunn Sveinsdóttir frá Byggðarenda við Brekastig með þrjá syni sína t.f.v. Sveinn, Óskar og Ingólfur Símón. 2. mynd: Þórunn Sveinsdóttir og Óskar og Sveinn Matthíassynir.

 

Minningarljóð um skipshöfnina á Ara VE 235

Þann 24 janúar 1930 fórst mótorbáturinn Ari VE 235 í vitlausu veðri suðaustur af Bjarnarey  við Vestmannaeyjar. Báturinn var í línuróðri þegar slysið varð og fórust allir skipverjar. Á þessum árum var þetta því miður algent að bátar voru að farast með allri áhöfn, með öllum þeim erfiðleikum sem þessu fylgdi fyrir þær fjölskyldur sem mistu þar fyrirvinnu og fjölskyldufeður.                                    Við minningarathöfn sem haldin var vegna Ara slyssins var mjög líklega  eftirfarandi minningarljóð flutt frá vandamönnum og vinum, en gamalt bréf hefur geymst sem innihélt þetta ljóð. Matthías Gíslason formaður á Ara VE var afi minn.

 Þeir menn sem fórust með Ara VE voru : Matthías Gíslason formaður frá Byggðarenda við Brekastig, Páll Gunnlaugsson Ráðagerði, Baldvin Kristinsson vélstjóri  Syðri - Ósi  Hofshreppi,  Eiríkur Auðunsson frá Svínahaga á Rangarvöllum, og Hans Andersen frá Færeyjum. 

Minningarljóðið er að öllum líkindum eftir Unu Jónsdóttir skáldkonu frá Sólbrekku, en undirskriftin er upphafstafirnir U.J.D

Ari VE  Mótorbáturinn Ari VE 235 á siglingu til hafnar

Skipshöfnin á mótorbátnum Ara

Nú sælir vinir blunda hafs í bárum,

en blessuð lifir minning þeirra kær.

þó öll við berum sorg með trega tárum,

því takmörk setur drottins náðin skær.

 

En konur mæður börn og systkin blíða,

og bljúga kveðju senda af einum hug.

Og vona um eilífð sæla anda svífa,

um sólarlönd við dýrðlegan fögnuð.

 

Þau öll nú þakka ást og tryggðir veittar,

og allt það sem þeim létu falla í skaut,

því öll þau vona, óska, biðja og teysta,

þið öðlist sælu lífs á helgri braut.

 

Og liðnir vinir líta á ástmenn sína,

og ljúfar kveðjur einnig senda heim.

Þeir óska að huggun skært þeim megi skína

og skuggi sorgar hverfi burt frá þeim.

U.J.D.

Frá vandamönnum og vinum. er undirskrift þessa bréfs

Kær kveðja Sigmar Þór


Áskorun til ættingja Þórunnar Sveinsdóttir

Hér með er skorað á þá sem geta sett inn á síðuna fjölskyldumynd að gera það, þeir sem eiga myndir en geta ekki sett þær inn geta sent þæar á nafar@simnet.is og þá skal ég setja þær hér inn. þetta er gert til að reyna að lífga upp á síðuna.

kær kveðja SÞS

 


Saga og efnisskrá Sjómannadagsblaðs Vestmannaeyja 1950 til 2000

Ármann, Þóra, Sigmar þ 

Myndin er tekin þegar við Guðjón Ármann afhentum Þóru eintak af Sögu og efnisskrá Sjómannadagsblaðs Vestmannaeyja 1950 - 2000 en þóra styrki útgáfuna. Þóra Sigurjónsdóttir ásamt Guðjóni Ármanni Eyjólfssyni og Sigmari Þór Sveinbjörnsson.


Gleðilegt sumar Byggðarenda stórfjölskylda

Brekastigur séð í austur Brekastígur séður í austur Húsin heita Hallormsstaður, Árbær, Reykjadalur,, Solberg og Vísir

 Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn. Kæru ættingar og vinir, nú gengur þetta ekki lengur að hafa síðuna okkar svona daufa, við verðum að vera duglegri að setja inn á hana fréttir og myndir af fjölskyldumeðlimum og segja frá því hvað er að gerast í okkar óviðjafnanlegu ætt Tounge. Skora á alla að taka þátt í að viðhalda síðuni svo fólk nenni að skoða hana. Þó það væri ekki nema skrifa athugasemdir eða nafnið sitt í gestabókina.Grin

Kær sumarkveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson


Sveinbjörn Grétarsson skyndihjálparmaður ársins

Sveinbjörn GrétarssonVerlaunahafi  Bjössi Snæ Bjössarnir

Sveinbirni Grétarsyni frænda ( Bjössa í Greifunum) er ymislegt til lista lagt Elvis eftirherma á leið til Vegas. sjá frétt í mogganum.

Kveðja

Sigmar Þór


Það var ýmislegt til gamans gert í gömlu góðu daga

Á Grímuballi í Alþiðuhúsinu.

Í gamla daga gerðum við ýmsilegt okkur til skemmtunar í þessari óviðjafnanlegu ætt frá Byggðarenda. Eitt var að fara á grímuböll. Eftirfarandi myndir eru teknar við eitt slíkt tækifæri annarsvegar við undirbúning og hinsvegar á grímuballinu sjálfu.

 Grímuball Svenni og MajaGrímuball Kolla og SimmiGrímuball Bobba, Kata, Auðunn og Kolla

1. mynd: Maja og Svenni á grímuballi. 2. mynd: Kolla og Sigmar Þór. 3. mynd : Bobba, Kata, Auðunn og Kolla.

Grímuball Kata og kúluhausGrímuball Bobba Hrói HotturGrímuball Gríman fallin Jónas, Marta Kolla

Myndir teknar á grímuballinu í Alþíðuhúsinu. 1 mynd: Katrín á tali við kúluhaus, Bobba sem Hrói  höttur. 3 mynd: Jónas, Marta, Kolla og mér sýnist Guðmundur afturmastur vera þarna einnig.

Með kærri kveðju Sigmar Þór

 


Fjölskyldumynd frá eldgosárinu 1973 og fl.

Gosið séð yfir bæinnFjölskyldumynd úr gosinu

Myndir teknar í Gosinu. Mynd 1. séð yfir hluta af bænum hulin ösku undirritaður á miðri mynd. Mynd 2. Matthildur Matthíasdóttir, Sigmar Guðmundsson, Sveinbjörn Snæbjörnsson, Erla Sigmarsdóttir, Auðunn Jörgensson, Þóra Sigurjónsdóttir, Cassandra (Þórunn Sveins Sveinsdóttir) og María Pétursdóttir.

Kær kveðja Sigmar Þór


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um Þórunni

Þórunn Júlía Sveinsdóttir
Þórunn Júlía Sveinsdóttir

Spurt er

Á að mæta á ættarmótið í sumar ?
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband