Leita í fréttum mbl.is

Mótorbáturinn Ari VE 235 ferst SA við Bjarnarey

20.5.2008 | 21:52

Matthías Gíslason og fjölskylda Þórunn Sveinsdóttir með syni sína 1. mynd: Hjónin Matthías Gíslason og Þórunn Sveinsdóttir frá Byggðarenda við Brekastig með þrjá syni sína t.f.v. Sveinn, Óskar og Ingólfur Símón. 2. mynd: Þórunn Sveinsdóttir og Óskar og Sveinn Matthíassynir.

 

Minningarljóð um skipshöfnina á Ara VE 235

Þann 24 janúar 1930 fórst mótorbáturinn Ari VE 235 í vitlausu veðri suðaustur af Bjarnarey  við Vestmannaeyjar. Báturinn var í línuróðri þegar slysið varð og fórust allir skipverjar. Á þessum árum var þetta því miður algent að bátar voru að farast með allri áhöfn, með öllum þeim erfiðleikum sem þessu fylgdi fyrir þær fjölskyldur sem mistu þar fyrirvinnu og fjölskyldufeður.                                    Við minningarathöfn sem haldin var vegna Ara slyssins var mjög líklega  eftirfarandi minningarljóð flutt frá vandamönnum og vinum, en gamalt bréf hefur geymst sem innihélt þetta ljóð. Matthías Gíslason formaður á Ara VE var afi minn.

 Þeir menn sem fórust með Ara VE voru : Matthías Gíslason formaður frá Byggðarenda við Brekastig, Páll Gunnlaugsson Ráðagerði, Baldvin Kristinsson vélstjóri  Syðri - Ósi  Hofshreppi,  Eiríkur Auðunsson frá Svínahaga á Rangarvöllum, og Hans Andersen frá Færeyjum. 

Minningarljóðið er að öllum líkindum eftir Unu Jónsdóttir skáldkonu frá Sólbrekku, en undirskriftin er upphafstafirnir U.J.D

Ari VE  Mótorbáturinn Ari VE 235 á siglingu til hafnar

Skipshöfnin á mótorbátnum Ara

Nú sælir vinir blunda hafs í bárum,

en blessuð lifir minning þeirra kær.

þó öll við berum sorg með trega tárum,

því takmörk setur drottins náðin skær.

 

En konur mæður börn og systkin blíða,

og bljúga kveðju senda af einum hug.

Og vona um eilífð sæla anda svífa,

um sólarlönd við dýrðlegan fögnuð.

 

Þau öll nú þakka ást og tryggðir veittar,

og allt það sem þeim létu falla í skaut,

því öll þau vona, óska, biðja og teysta,

þið öðlist sælu lífs á helgri braut.

 

Og liðnir vinir líta á ástmenn sína,

og ljúfar kveðjur einnig senda heim.

Þeir óska að huggun skært þeim megi skína

og skuggi sorgar hverfi burt frá þeim.

U.J.D.

Frá vandamönnum og vinum. er undirskrift þessa bréfs

Kær kveðja Sigmar Þór


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Hver er summan af einum og fimm?
Nota HTML-ham

Um Þórunni

Þórunn Júlía Sveinsdóttir
Þórunn Júlía Sveinsdóttir

Spurt er

Á að mæta á ættarmótið í sumar ?
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband