26.2.2011 | 22:09
Ný Þórunn Sveinsdóttir VE 401 kom í desember 2010
Hver var sú Þórunn Sveinsdóttir sem skipið er skírt eftir og er í dag orðið landsfrægt skipsnafn? Skyggnumst aðeins aftur í tímann. Hún hét fullu nafni Þórunn Júlía Sveinsdóttir, kölluð Þórunn eða Tóta á Byggðarenda. Hún var fædd á Eyrarbakka 8. júlí árið 1894 og ólst upp hjá foreldrum sínum. Faðir hennar var Sveinn Sveinsson, fæddur í Simbakoti 9. okt. 1863. Hann var sjómaður, lést 1941. Kona hans og móðir Þórunnar var Ingunn Sigurðardóttir frá Rauðafelli í A-Eyjafjöllum, f. 26. jan. 1858, d. 1941. Þau hjón bjuggu að Ósi á Eyrarbakka með fimm börnum sínum, fjórum stúlkum og einum dreng. Húsið Ós hafði tvær burstir og það var aðeins eitt herbergi í austurburstinni. Í því svaf öll fjölskyldan þannig að þröngt hefur verið í herberginu. Sváfu systurnar tvær og tvær saman í rúmi en bróðir þeirra einn. Húsið Ós stendur enn á Eyrarbakka. Börn Sveins og Ingunnar voru: Sigurður Ari, Þórunn Júlía, sem hér skipið er skírt eftir, Anna, Sveinbjörg, og Jónína síðar kennd við Sjónarhól. Systurnar Þórunn, Sveinbjörg og Jónína fluttust allar til Vestmannaeyja og bjuggu þar mestan hluta ævi sinnar enda var mikill uppgangur í Vestmannaeyjum á þessum tíma, bátar voru vélvæddir, afli jókst og mikið að gera fyrir vinnufúsar hendur.
Þórunn var 22 ára gömul þegar hún fluttist til Vestmannaeyja árið 1916 ásamt tilvonandi eiginmanni sínum, Matthíasi Gíslasyni sjómanni frá Eyrarbakka. Foreldrar Matthíasar voru Gísli Karelsson, f. 25. nóv. 1868, frá Sjávargötu á Eyrarbakka. Hann drukknaði í sjóslysi á Stokkseyrarsundi ásamt sjö öðrum sjómönnum 2. apríl 1908. Kona hans, Jónína Margrét Þórðardóttir, f. 25. maí 1870, d. 1951, var frá Vatnsholti í Villingaholtshreppi í Árnessýslu.
Þau Þórunn og Matthías byrjuðu strax að búa eftir að þau komu til Eyja, og þann 10. maí 1917 giftu þau sig. Þau fengu inni á Vestri-Gjábakka sem var frekar lítið hús allt á einni hæð. Það var austarlega á Heimaey og stóð við Bakkastíg. Fyrsta barn þeirra Þórunnar og Matthíasar fæddist þar 17. des. 1916 og fékk nafnið Ingólfur Símon ( Stundum kenndur við HaförnVE ). Frá Gjábakka fluttust þau Þórunn og Matthías að Vestmannabraut 27, í hús sem hét Garðsauki, Það hús átti Árni Jónsson útgerðarmaður. Þar fæddist Sveinn 14. ágúst 1918 (Einnig hendur við Haförn VE) og Óskar 22. mars 1921 ( Óskar á Leó VE. stofnaði útgerðina Ós ehf sem á Þórunni Sveinsdóttir VE ) . Frá Garðsauka flytjast þau hjón að Vallarnesi og síðan á Hof við Urðaveg. Á þessum árum eignuðust þau Gísla, fæddur 17. apríl 1925, en hann lést í bílslysi í Reykjavík aðeins 8 ára gamall. Matthildur Þórunn fæddist 13. júní 1926. Árið1928 kaupa þau Byggðarenda minnsta húsið við Brekastíg 15a. Þröngt var um þau í því húsi. Það var gengið inn í það að norðan, inn í litla forstofu eða gang og beint inn af útidyrunum var herbergi þar sem öll fimm börnin sváfu og lítið herbergi inn af því þar sem þau hjón sváfu. Einnig var eldhús, meira var plássið ekki. Vaskahús var í skúr bak við húsið. Eins og sést á þessum búferlaflutningum hefur verið erfitt með húsnæði í Eyjum á þessum árum.
Byggðarendi við Brekastíg 15 a
Eins og áður hefur komið fram var Matthías alltaf sjómaður. Fyrst á skútum frá Reykjavík en síðan stundaði hann sjó frá Vestmannaeyjum og var þá skipstjóri eða formaður eins og það var kallað á þessum árum. Vélbáturinn Ari ferst. Þau Þórunn, Matthías og fjölskylda fengu ekki að vera lengi saman í þessu litla húsi, aðeins tvö ár. Þann 24. janúar 1930 drukknaði Matthías þegar vélbáturinn Ari fórst með allri áhöfn.
Myndir eru af nýju Þórunni Sveinsdóttir VE 401 og Óskari Matthíassyni með móður sinni Þórunni Sveinsdóttir. Neðsta myndin er tekin þegar skipið kom til Eyja.
Lengri grein er hér á blogginu mínu um lífshlaup Þórunnar Sveinsdóttir, hún birtist í Sjómannadagsblaði Vestmannaeyja 2006
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Spurt er
Tenglar
Myndasiða
Heimsíður ungviðsins í ættini
Heimasíðuslóðir hjá litlu dúllunum í ættinni
- Reynar Hlynsson Foreldrar: Ágústa Dröfn og Hlynur
- Sölvi Snorrason Óskars leggur
- Daníel Smári Arnþórsson Óskars leggur
- Minningarsíða Daða Snæs Arnþórssonar Óskars leggur
- Birgitta Dögg Arnþórsdóttir Óskars leggur
- Kolbrún Eva Granz Foreldrar: Birna og Halli
- Hrefna Brynja,Bryndís og Mattías Gíslabörn Foreldrar: Gísli og Hrund
- María Fönn Frostadóttir Foreldrar: Frosti og Ingibjörg
- Sigmar Snær og Klara Sigurðarbörn Foreldrar: Siggi og Berglind
- Óskar Dagur Jónasson Foreldrar: Laufey og Jónas
- Agnes Gísladóttir Foreldrar: Gilli og Olga
- Ágúst Óli og Rut Sigurðarbörn Foreldrar: Sonja og Siggi
- Victoría Karen Ottósdóttir Foreldrar: Guðbjörg og Ottó
Fyrirtæki fjölsk.meðlima
Heimasíður fjölsk.meðlima.
Hér verða settar inn heimasíður fjölsk.meðlima. Vinsamlegast sendið tengil á katag@internet.is ásamt nafni og úr hvaða legg
- Ljósmyndasíða Hrefnu Sigurðard.
- http://
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson Bloggsíða Sigmars Þórs
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Desember 2011
- Október 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Desember 2006
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning