Leita í fréttum mbl.is

Eyjapeyji með hæstu einkun á sveinsprófi matreiðslumanna

Gísli Auðunsson

Eyjapeyjinn Gísli Matthías Auðunsson útskrifaðist nú fyrir stuttu frá Menntaskólanum í Kópavogi með hæstu einkunn á sveinsprófi matreiðslumanna. Gísli var með næst hæstu einkunn sem gefin hefur verið við skólan frá upphafi.

Gísli lærði í Veisluturninum hjá frænda sínum og stórkokki Sigurði Gíslasyni.

Gísli er sonur Auðuns Stefnissonar og Katrínar Gísladóttir og óska ég þeim hjónum til hamingju með peyann.

Gísli setur stefnuna á Eyjar næsta sumar þar sem hann ætlar að opna eigin veitingastað.
Til gamans má geta þess að Gísli er barna barn Bobbu og Gísla en kokka genið virðist vera viðloðandi í þeirra fjölskyldu með Grím kokk og Sigga Gísla í Veisluturninum fremsta í flokki.

Til hamingu með þennann góða árangur Gísli frændi, ég veit að þú átt eftir að verða þekktur listakokkur í framtíðinni.

Gángi þér allt í haginn.

Kær kveðja

Sigmar Þór


Nýfædd stelpa í Byggðarendafjölskylduna

IMG_7888

 Í gær 7. október 2011 fæddist litil falleg stelpa inn í Byggðarendafjölskylduna, foreldrar eru Óskar Friðrik Sigmarsson og Júlía Sighvats Pálmadóttir.

Fyrri myndin er af Kolbrúnu Ósk ömmunni með litlu stelpuna aðein nokkra tíma gamla, og seinni myndin er af Óskari Friðrik pabbanum sem situr þarna stoltur með dóttirina í fanginu.

IMG_7893

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Hvernig er þetta með þessa þessa ætttingja, er engin sem nennir orðið að setja hér inn efni??

Kær kveðja úr Kópavoginum

Sigmar Þór Sveinbjörnsson


Saga útgerðar Óskars Matt og Sigurjóns Óskarssonar í myndum

 Nanna VE 300

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Nanna VE 300 fyrsti bátur sem Óskar Mtthíasson eignaðist.

gamli_leo_lika

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Leó Ve 294 annar báturinn sem Óskar keypti.

Leó VE 400 í Grimsbý

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Léó VE 400 byggður í Þýskalandi 1959

Þórunn Sveinsd VE

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þórunn Sveinsdóttir VE 401 bygð í Stálvík í Garðabæ 1971

Þórunn Sveinsdóttir ísing

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þórunn Sveinsdóttir VE 401 byggð á Akureyri 1991

Tótu gefið nafn

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þórunn Sveinsdóttir VE 401 byggð í Póllandi og innréttuð í Skagen í Danmörku 2010.


Ný Þórunn Sveinsdóttir VE 401 kom í desember 2010

Tótu gefið nafn

Hver var sú Þórunn Sveinsdóttir sem skipið er skírt eftir og er í dag orðið landsfrægt skipsnafn? Skyggnumst aðeins aftur í tímann.  Hún hét fullu nafni Þórunn Júlía Sveinsdóttir, kölluð Þórunn eða Tóta á Byggðarenda. Hún var fædd á Eyrarbakka 8. júlí árið 1894 og ólst upp hjá foreldrum sínum. Faðir hennar var Sveinn Sveinsson, fæddur í Simbakoti 9. okt. 1863. Hann var sjómaður, lést 1941. Kona hans og móðir Þórunnar var Ingunn Sigurðardóttir frá Rauðafelli í A-Eyjafjöllum, f. 26. jan. 1858, d. 1941. Þau hjón bjuggu að Ósi á Eyrarbakka með fimm börnum sínum, fjórum stúlkum og einum dreng. Húsið Ós hafði tvær burstir og það var aðeins eitt herbergi í austurburstinni. Í því svaf öll fjölskyldan þannig að þröngt hefur verið í herberginu. Sváfu systurnar tvær og tvær saman í rúmi en bróðir þeirra einn. Húsið Ós stendur enn á Eyrarbakka.    Börn Sveins og Ingunnar voru: Sigurður Ari, Þórunn Júlía, sem hér skipið er skírt eftir, Anna, Sveinbjörg, og Jónína síðar kennd við Sjónarhól.                Systurnar Þórunn, Sveinbjörg og Jónína fluttust allar til Vestmannaeyja og bjuggu þar mestan hluta ævi sinnar enda var mikill uppgangur í Vestmannaeyjum á þessum tíma, bátar voru vélvæddir, afli jókst og mikið að gera fyrir vinnufúsar hendur.  

Þórunn var 22 ára gömul þegar hún fluttist til Vestmannaeyja árið 1916 ásamt tilvonandi eiginmanni sínum, Matthíasi Gíslasyni sjómanni frá Eyrarbakka. Foreldrar Matthíasar voru Gísli Karelsson, f. 25. nóv. 1868, frá Sjávargötu á Eyrarbakka. Hann drukknaði í sjóslysi á Stokkseyrarsundi ásamt sjö öðrum sjómönnum 2. apríl 1908. Kona hans, Jónína Margrét Þórðardóttir, f. 25. maí 1870, d. 1951, var frá Vatnsholti í Villingaholtshreppi í Árnessýslu.            

     _skar_og_orunn_amma_sunnuhvoli[1]     Þau Þórunn og Matthías byrjuðu strax að búa eftir að þau komu til Eyja, og þann 10. maí 1917 giftu þau sig. Þau fengu inni á Vestri-Gjábakka sem var frekar lítið hús allt á einni hæð. Það var austarlega á Heimaey og stóð við Bakkastíg. Fyrsta barn þeirra Þórunnar og Matthíasar fæddist  þar 17. des. 1916 og fékk nafnið Ingólfur Símon ( Stundum kenndur við HaförnVE ). Frá Gjábakka fluttust þau Þórunn og Matthías að Vestmannabraut 27, í hús sem hét Garðsauki, Það hús átti Árni Jónsson útgerðarmaður. Þar fæddist Sveinn 14. ágúst 1918 (Einnig hendur við Haförn VE) og Óskar 22. mars 1921 ( Óskar á Leó VE. stofnaði útgerðina Ós ehf  sem á Þórunni Sveinsdóttir VE ) . Frá Garðsauka flytjast þau hjón að Vallarnesi og síðan á Hof við Urðaveg. Á þessum árum eignuðust þau Gísla, fæddur 17. apríl 1925, en hann lést í bílslysi í Reykjavík aðeins 8 ára gamall. Matthildur Þórunn fæddist 13. júní 1926. Árið1928 kaupa þau Byggðarenda minnsta húsið við Brekastíg 15a. Þröngt var um þau í því húsi. Það var gengið inn í það að norðan, inn í litla forstofu eða gang og beint inn af útidyrunum var herbergi þar sem öll fimm börnin sváfu og lítið herbergi inn af því þar sem þau hjón sváfu. Einnig var eldhús, meira var plássið ekki. Vaskahús var í skúr bak við húsið. Eins og sést á þessum búferlaflutningum hefur verið erfitt með húsnæði í Eyjum á þessum árum. 

Byggðarendi gömul mynd Byggðarendi við Brekastíg 15 a     

 Eins og áður hefur komið fram var Matthías alltaf sjómaður. Fyrst á skútum frá Reykjavík en síðan stundaði hann sjó frá Vestmannaeyjum og var þá skipstjóri eða formaður eins og það var kallað á þessum árum.       Vélbáturinn Ari ferst.               Þau Þórunn, Matthías og fjölskylda fengu ekki að vera lengi saman í þessu litla húsi, aðeins tvö ár. Þann 24. janúar 1930 drukknaði Matthías þegar vélbáturinn Ari fórst með allri áhöfn.

Tóta kominn

Myndir eru af nýju Þórunni Sveinsdóttir VE 401 og Óskari Matthíassyni með móður sinni Þórunni Sveinsdóttir. Neðsta myndin er tekin þegar skipið kom til Eyja.

Lengri grein er hér á blogginu mínu um lífshlaup Þórunnar Sveinsdóttir, hún birtist í Sjómannadagsblaði Vestmannaeyja 2006



Nýr fjölskyldumeðlimur í Byggðarendafjölskylduna

Harpa og Kolbrún Soffía með litlu systir

Þann 4. janúar 2011 fæddist þessi litla stelpa í Danmörku, er þetta líklega nýjasti fjölskyldumeðlimur ættarinnar. Harpa Sigmarsdóttir og Þór Sigþórsson eiga þessa fallegu stelpu, en þau eiga fyrir Kolbrúnu Soffíu Þórsdóttir. Myndin er af Hörpu, Kolbrúnu Soffíu og Litlu nýfæddu stelpunni.

 Þór og nýja daman

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Sú litla nýfædd í fanginu á pabba sinum Þór Sæþórssyni.

 nýr meðlimur fjölskyldu

 


Sveinn Matthíasson og peyjarnir

Svenni og strákarnir

 

Sveinn Matthíasson fyrir utan Sunnuhvol með strákana sína: Pétur, Sævar og líklega Halldór.

Saltkjötstunnan er þarna til hægri á myndinni Smile.

Kær kveðja SÞS


Gísli Sigmarsson Byggðarenda við Brekastíg

Gísli Sigmarsson ByggðarendaGísli Sigmarsson Byggðarenda 1

 

Gísli Sigmarsson frá Byggðarenda við Brekastig 15 a nú till heimilis að faxastíg 47 VM. skipstjóri og útgerðarmaður á Ellíðaey VE  Katrínu VE.

Kær páskakveðja

Sigmar Þór


Gísli Gíslason þyrluflugmaður

Gísli Gíslason þyrluflugmaður

 

FRÉTTABLAÐIÐ

Gísli Gíslason þyrluflugmaður hjá Norðurflugi, varð vitni að því þegar ný sprunga opnaðist á Fimmvörðuhálsi rétt fyrir kl. 7 í gærkvöldi.

Myndina tók Gísli Gíslason

 

Kveðja Sigmar Þór


Sigmar Benóný skírður í gær

IMG_4729

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Í gær var Sigmar Benóný Óskarsson skírður á Sauðakróki en hann er sonur Óskars Friðrik Sigmarssonar og Júlíu Pálmadóttur Sighvats.

 Myndirnar eru teknar í tilefni af þessari skírn.

Fjölskyldan eins og hún leggur sig :-)

 

IMG_4675IMG_4708

 

 


Nafnarnir

Nafnarnir

 

Nafnarnir saman:

T.f.v.Sigmar Þór Sveinbjörnsson, Sigmar Guðmundsson, Sigmar Gíslason, og Sigmar Þröstur Óskarsson.

Myndin á veggnum er af Þórunni Sveinsdóttir.

Kær kveðja SÞS

 


Næsta síða »

Um Þórunni

Þórunn Júlía Sveinsdóttir
Þórunn Júlía Sveinsdóttir

Spurt er

Á að mæta á ættarmótið í sumar ?
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband